Hvað er EASA?
EASA (European Architecture Student Assembly) er haldið á hverju sumri í tvær vikur. Þar koma saman um 500 arkitektanemar frá allri Evrópu og víðar að og skiptast á þekkingu með því að leysa saman ýmis verkefni. EASA var fyrst haldið árið 1981, en frá Íslandi fóru fyrstu nemendur á EASA viðburð árið 2003.
Sumarið 2026 verður EASA haldið í Waterford á Írlandi. Þemað í ár er Seanchaí (sagnamennska), og er það okkur sérstaklega hugleikið þar sem rýnt verður í hvernig arkitektúr getur varðveitt og miðlað menningarsögu.
Fimm ungir arkitektanemar taka þátt í ár.
EASA Seanchaí 2026 - Umsóknarfrestur er liðinn.

Nánar um EASA:
EASA er vettvangur fyrir miðlun hugmynda og þekkingar evrópskra arkitektanema.
Þessu markmiði er fyrst og fremst náð í gegnum EASA-sumarsamkomuna, en einnig með SESAM (Small European Students of Architecture Meeting) og INCM (Intermediate National Contact Meeting).
EASA eru ekki hefðbundin samtök, heldur pólitískt hlutlaust tengslanet sem starfar óhagnaðardrifið með það að markmiði að leiða skapandi ungt fólk saman.
Saga og tilgangur
EASA var stofnað árið 1981 þegar arkitektúrnemar í Liverpool buðu evrópskum samnemendum sínum að koma og hjálpa sér að leysa úr vandamálum í borginni þeirra.
Um 300 nemendur komu saman undir þemanu „starting up the EASA experience“.
Síðan þá hafa samkomurnar verið haldnar ár hvert í ólíkum löndum með um 500 þátttakendum á hverju ári.
EASA er hagnýtt tengslanet fyrir samvinnu, þekkingu og sköpunargleði.
Með viðburðunum geta arkitektúrnemar rætt hugmyndir sínar, unnið saman og deilt reynslu sinni af arkitektúr, menntun og menningu.
Með því að kanna nýjar víddir í arkitektúr, hönnun og útivist öðlast ungir arkitektar nýja sýn og víkka sjóndeildarhringinn.
Með því að halda samkomur í mismunandi löndum fást tækifæri til að kynnast menningarlegum, sögulegum og umhverfislegum bakgrunni þess lands sem heldur viðburði hverju sinni.
Gildi
EASA er hlutlaus vettvangur. Ekki er lögð áhersla á ákveðna hagsmuni eða stefnuskrá, né er sýnd hlutdrægni sem gæti talist mismunun eða útilokun. EASA stendur fyrir heildræna sýn á jafnrétti óháð kyni, kynþætti, kynhneigð eða stöðu minnihlutahópa. Þessi hugsjón skal endurspeglast í fjölbreytileika þátttakenda, vinnustofa og fyrirlestra. Markmið EASA er að allir sem taka þátt víkki sjóndeildarhring sinn og myndi dýrmætt tengslanet við kollega.
Nánari upplýsingar um EASA er að finna á www.easanetwork.org